Laus störf
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.
Kynntu þér laus störf hjá Garðabæ hér fyrir neðan.
Bæjarskrifstofur
Þjónustufulltrúi í þjónustuver Garðabæjar
Garðabær auglýsir eftir þjónustufulltrúa í fullt starf við bæjarskrifstofur Garðabæjar í Ráðhúsi bæjarins.
Þjónustufulltrúinn er hluti af þjónustuveri bæjarins sem er fyrsti snertiflötur við öll svið bæjarins þar sem ávallt er leitast við að leysa úr erindum íbúa og viðskiptavina.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur7. apríl 2026
Grunnskólar
Sjálandsskóli - stuðningsfulltrúar
Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80%- 100% starf frá og með 13. ágúst 2026 fyrir skólaárið 2026-2027.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru rúmlega 280 nemendur.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur8. apríl 2026Sjálandsskóli - umsjónarkennari á yngsta stig
Sjálandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig í fullt starf frá 1. ágúst 2026.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru rúmlega 280 nemendur.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur8. apríl 2026Flataskóli - þroskaþjálfi / atferlisfræðingur
Flataskóla vantar metnaðarfullan þroskaþjálfa/atferlisfræðing til starfa.
Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem vellíðan nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?
Við leitum að þroskaþjálfa í 75–100% starf. Viðkomandi getur hafið störf strax ef möguleiki er á því, en annars 1. ágúst 2026. Um er að ræða fast starf.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur7. apríl 2026Flataskóli - umsjónarkennarar
Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem velferð nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?
Við leitum að kennurum í fullt starf frá 1. ágúst 2026, um er að ræða fast starf. Öllum áhugasömum kennurum er velkomið að sækja um, óháð reynslu á ákveðnu stigi – við leggjum áherslu á hæfni og metnað.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur7. apríl 2026Flataskóli - deildarstjóri
Flataskóli leitar að deildarstjóra
Viltu taka þátt í að leiða metnaðarfullt skólastarf þar sem velferð nemenda, fagmennska og gott samstarf eru í forgrunni?
Flataskóli leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf deildarstjóra nemendamála sem vill taka þátt í að þróa og efla skólastarf í jákvæðu og styðjandi starfsumhverfi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur26. mars 2026Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara skólaárið 2026-2027. Í skólanum verða um 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur13. apríl 2026
Leikskólar
Leikskólinn Akrar - deildarstjóri
Við leitum að deildarstjóra í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og ert til í að vinna með ólíkum einstaklingum eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur10. apríl 2026Kirkjuból - deildarstjóri
Um er að ræða deildarstjórastöðu á deild yngri barna og er starfið laust frá 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur1. apríl 2026Kirkjuból - leikskólakennari
Leikskólakennari óskast í leikskólann Kirkjuból. Leikskólinn er þriggja deilda, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Áherslur leikskólans eru á sköpun og lífsleikni ásamt náttúru og umhverfi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur25. mars 2026Urriðaholtsskóli - leikskólakennari
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir leikskólakennurum til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur25. mars 2026Leikskólinn Akrar - leikskólakennari
Við leitum að drífandi starfsmanni í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og allskonar fólki eru miklar líkur á að þú fallir vel inn í hópinn okkar. Starfsandi á Ökrum er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur27. mars 2026
Málefni fatlaðs fólks
Starf á heimili fatlaðs fólks
Auglýst er eftir starfsmanni á heimili fatlaðs fólks, um vaktavinnu er að ræða. Unnið að jafnaði aðra hverja helgi, morgun, dag, kvöld og næturvaktir.
Um 25 % starf er að ræða og getur orðið hærri prósenta í sumar. Getur hentað með skóla eða dagvinnu.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur26. mars 2026
Sumarstörf
Biðlisti vegna sumarstarfa
Biðlisti vegna sumarstarfa
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur30. apríl 2026
Hlunnindi fyrir starfsmenn
Garðabær býður starfsfólki upp á ýmis hlunnindi. Aukin hlunnindi eru sérstaklega í boði fyrir starfsfólk leikskóla.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Aukin hlunnindi fyrir starfsfólk leikskóla
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
- 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.