Beint í efni

Svið

Stjórnsýslan í Garðabæ skiptist í fimm svið; fjármála- og stjórnsýslusvið, fræðslu- og frístundasvið, umhverfissvið, velferðarsvið og þjónustu- og þróunarsvið.

Fjármála- og stjórnsýslusvið

Fjármála- og stjórnsýslusvið er stoðsvið sem vinnur þvert á önnur svið stjórnsýslunnar. Á fjármála- og stjórnsýslusviði fer fram innheimta á öllum kröfum bæjarsjóðs, þ.m.t. fasteignagjöldum, leikskólagjöldum og gatnagerðargjöldum. Forstöðumaður sviðsins er  jafnframt skrifstofustjóri bæjarskrifstofanna og staðgengill bæjarstjóra. 

Verkefni sviðs fjármála- og stjórnsýslu eru erindrekstur stjórnsýslu, lögfræðiþjónusta, fjármálastjórnun, bókhald og mannauðs- og kjaramál.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs er Lúðvík Örn Steinarsson. Hann er með netfangið ludvikorn@gardabaer.is.

Fræðslu- og frístundasvið

Fræðslu- og frístundasvið fer með yfirstjórn málefna grunnskóla og leikskóla bæjarins, tónlistarskóla, íþrótta- og tómstundamála.

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs er Linda Udengård. Hún er með netfangið linda@gardabaer.is.

Umhverfissvið

Megin­verk­efni umhverfissviðs eru nýfram­kvæmdir og viðhalds­verk­efni á vegum sveit­ar­fé­lagsins, rekstur og viðhald veitu­kerfa, umhverfis- og hrein­læt­ismál og umsjón með fast­eignum.

Á umhverfissviði starfa 35 starfsmenn. Sviðið skiptist í eftirfarandi starfssvið; embætti byggingarfulltrúa, embætti skipulagsstjóra, eignasjóð, garðyrkjudeild, Samveitu Garðabæjar, þjónustumiðstöð og almenna skrifstofu.

Sviðsstjóri umhverfissviðs er Guðbjörg Brá Gísladóttir. Hún er með netfangið gudbjorgbra@gardabaer.is.

Velferðarsvið

Velferðarsvið fer með framkvæmd þeirra mála er lúta að félagslegri þjónustu bæjarins, barnavernd og jafnréttismálum. Til félagslegrar þjónustu teljast m.a. félagsleg ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, félagsleg heimaþjónusta, málefni barna og ungmenna, málefni aldraðra, málefni fatlaðs fólks og húsnæðismál.

Sviðsstjóri velferðarsviðs er Svanhildur Þengilsdóttir. Hún er með netfangið svanhildurthe@gardabaer.is.

Þjónustu- og þróunarsvið

Þjónustu- og þróunarsvið er stoðsvið sem vinnur þvert á önnur svið stjórnsýslunnar. Meginverkefni sviðsins eru stjórnun umbóta á þjónustuferlum, stafrænar breytingar, samskiptamál, upplýsingatækni, rekstur þjónustuvers og gæðamál.
Menningarmál, starfsemi Bókasafns Garðabæjar og Hönnunarsafns Íslands heyra einnig undir sviðið.

Sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs er Ágúst Þór Guðmundsson. Hann er með netfangið agustg@gardabaer.is.

Skipurit Garðabæjar