Snjómokstur
Þegar snjóað hefur byrjar snjómokstur kl. 4 að nóttu og er unnið eftir forgangsáætlun. Reynt er að halda öllum aðalleiðum opnum, bæði götum og stígum. Húsagötur koma þar á eftir og eru hreinsaðar eins hratt og hægt er hverju sinni.

Forgangsáætlun
Þú getur séð hvaða götur og stígar eru í forgangi á kortavefnum.
- Opnaðu flokkinn „Samgöngur“ í valmyndinni hægra megin og hakaðu við Snjómokstur.
- Þá birtast leiðirnar sem eru farnar og hvaða götur og stígar eru í forgangi.
Umferðargötur
Á umferðargötur fara stórtæk snjóruðningstæki sem komast hratt yfir og salt er notað til hálkueyðingar.
Markmiðið er að fyrir kl. 07:30 sé eftirfarandi greiðfært:
- stofnbrautir
- strætisvagnaleiðir
- fjölfarnar safngötur
- bílaplön við stofnanir
- stofnanalóðir
- aðkoma að skólum og leikskólum
Húsagötur
Þegar aðalleiðir hafa verið hreinsaðar kemur að húsagötum sem eru þungfærar eða snjódýpt talsverð. Snjóhreinsun miðast við að gera þessar götur akfærar. Salt eða sandur er notaður til hálkueyðingar eftir atvikum.
Við snjóhreinsun í húsagötum geta snjóruðningar myndast við innkeyrslur. Við reynum að haga mokstri þannig að það gerist ekki en aðstæður eru misjafnar og stundum er það óhjákvæmilegt. Snjóruðningar eru ekki mokaðir nema í sérstökum tilfellum. Það fellur því í hlut íbúa að hreinsa burt snjó úr innkeyrslum.
Stígar og gangstéttar
Á stíga og gangstéttir fara sérútbúnar dráttarvélar og til hálkueyðingar er notaður sandur og salt. Stofnstígar (breiðir göngu- og hjólastígar sem tengja saman bæjarhluta) hafa forgang í hreinsun. Síðan er farið í megingönguleiðir að strætóskýlum og skólum. Miðað er við að þær séu orðnar greiðfærar fyrir kl. 8:00 virka daga.
Ef mikið hefur snjóað er stundum farið út um helgar til að létta á göngustígum. Þröngir göngustígar í eldri hverfum (1–1,2 m) eru vanalega ekki mokaðir því erfitt er að fara þar um með vélar vegna þrengsla. Við reynum þó að bregðast við ábendingum eins og hægt er.
Salt og sandur fyrir íbúa
Á veturna getur þú fengið salt og sand hjá Þjónustumiðstöð Garðabæjar, Lyngási 18.
Viltu vita meira?
Ertu með athugasemd varðandi snjómokstur? Sendu okkur ábendingu.
Þjónustuver Garðabæjar svarar öllum spurningum um snjómokstur í síma 525 8500 eða á netfangið gardabaer@gardabaer.is.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.