Sorphirða
Heimilissorp á að flokka í 4 flokka: pappír, plast, matarleifar og blandaðan úrgang. Málmi, gleri og textíl er safnað á grenndarstöðvum. Stærri hlutir og enn fleiri flokkar fara á Endurvinnslustöðvar Sorpu.
Sorphirðudagatal
Sorphirðudagatalið er viðmiðunardagatal. Veðurfar, veikindi, bilanir og annað ófyrirséð getur seinkað sorphirðu um 1–3 daga. Íslenska gámafélagið sér um sorphirðu í Garðabæ.
Flokkun sorps
Almennt eru þrjár tunnur við hvert heimili, ein fyrir plast, önnur fyrir pappír og sú þriðja er tvískipt fyrir matarleifar og blandaðan úrgang. Nánari upplýsingar um flokkun á sorpi eru á flokkum.is.
Rúmist sorp ekki í tunnunni eða því hefur verið þjappað í tunnuna þannig að það falli ekki úr henni við losun verður sorpið skilið eftir og húseigandi þarf sjálfur að koma því á næstu endurvinnslustöð.
Matarleifar

Heimili geta fengið körfu og bréfpoka yfir matarleifar á næstu stöð Sorpu. Það má ekki nota plast- eða maíspoka þar sem þeir brotna ekki niður.
Í lífrænu tunnuna fara meðal annars:
- matarleifar
- eggjaskurn
- kaffikorgur
- fiskiúrgangur og bein
Við sérbýli er tunnan tvískipt með blönduðum úrgangi. Lífrænn úrgangur er losaður á 14 daga fresti.
Blandaður úrgangur

Í tunnuna fyrir blandaðan úrgang fer meðal annars:
- dömubindi
- blautklútar
- bleyjur
- ryksugupokar
Við sérbýli er tunnan tvískipt með lífrænum úrgangi. Blandaður úrgangur er losaður á 14 daga fresti.
Plast

Í tunnuna fyrir plast fer meðal annars:
- snakkpokar
- plastfilma
- plastpokar
- sjampóbrúsar
- plastumbúðir
Plasttunnan er losuð á 21 daga fresti.
Pappír og pappi

Í tunnuna fyrir pappír og pappa fer meðal annars:
- dagblöð
- bréfpokar
- pítsukassar
- pappírsumbúðir
Pappírstunnan er losuð á 21 daga fresti.
Staðsetning á tunnum
Æskilegast er að hafa ruslatunnur í innbyggðum sorpgeymslum, annars er nauðsynlegt að festa þær tryggilega. Mikilvægt er að það sé gott aðgengi að tunnunum þannig að það sé auðvelt fyrir sorphirðumenn að nálgast þær.
Viðmið
- Tunnur eiga að vera götumegin við hús.
- Staðsetning er í mesta lagi 7 metrar frá staðnum þar sem sorpbíll getur stöðvað.
- Ekki á að þurfa að fara með þær upp og niður tröppur (sé hjá því komist).
- Það er á ábyrgð húseigenda að hreinsa snjó frá sorpgeymslum og hreinsa leiðina sem fara þarf með tunnur að götu.
Ef þú staðsetur tunnu annars staðar en viðmið segja til um þarftu að koma tunnunni á slíkan stað á losunardegi.
Panta nýja tunnu
Þú pantar nýjar tunnur í Þjónustugátt Garðabæjar.
Tunnur fyrir nýtt hús
Í nýjum húsum þar sem ekki hefur verið sorphirða áður þurfa eigendur að panta sorptunnur eða djúpgáma í Þjónustugátt Garðabæjar. Kostnaður við nýjar tunnur og gáma er innifalinn í sorphirðugjaldi sem er hluti af fasteignagjöldum.
Bæta við eða breyta sorptunnum
Þú getur pantað viðbótartunnur eða breytt tunnum í Þjónustugátt Garðabæjar. Greitt er fyrir tunnur samkvæmt gjaldskrá og einnig er tekið umsýslugjald vegna breytinga.
Tvískiptar tunnur fyrir plast og pappír
Þú getur valið um að fá tvískipta tunnu fyrir plast og pappír
- Stærð tunnu er 240 lítrar.
- Tunnunni er skipt upp í hlutfallinu 60/40.
- Minna hólfið er 96 lítrar (plast) og stærra hólfið 144 lítrar (pappír og pappi).
Til að fá tvískipta tunnu fyrir plast og pappír þarftu að samþykkja að ef tunnan er yfirfull eða sorpi hefur verið þjappað þannig að það fellur ekki úr við losun verður sorpið skilið eftir. Þá þarftu að fara með sorpið á endurvinnslustöð.
Er tunnan þín ónýt eða týnd?
Hafðu samband við Þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða á netfangið gardabaer@gardabaer.is.
Panta lok eða festingu
Ef þú þarft að panta lok eða festingu eða til að láta vita ef tunna skilaði sér eftir losun getur þú sent ábendingu á Ábendingavefnum.
Grenndarstöðvar
Litlar grenndarstöðvar í Garðabæ taka á móti gleri, málmi, textíl og skilagjaldskyldum flöskum og dósum. Stórar grenndarstöðvar taka einnig á móti pappír og plasti. Gámarnir eru með snjallskynjara sem tryggja tímanlega losun og fyrirbyggja fulla gáma.

Litlar grenndarstöðvar
- Holtsvegur 49
- Sjálandsskóli
- Álftanes – Suðurnes við golfvöll
Stórar grenndarstöðvar
- Skólabraut 5
- Ásgarður
- Holtsvegur 21
- Álftanes – Norðurnes við spennistöð
Upplýsingar um hvaða grenndarstöð er næst þér er á vef Sorpu.
Ertu með athugasemd varðandi grenndarstöðina þína? Sendu okkur ábendingu.
Viltu vita meira?
Þjónustuver Garðabæjar svarar öllum spurningum um sorphirðu í síma 525 8500 eða á netfangið gardabaer@gardabaer.is.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.