Beint í efni

Ung­menna­hraun

Ungmennahraun er sértæk frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára með miklar stuðningsþarfir.

Ungmennahraun

Hátíðarsalur við UMFÁ, Breiðumýri 225 Álftanes

Sími: 820 8594

Forstöðumaður: Ágúst Arnar Þráinsson

agustthr@gardabaer.is

Deildarstjóri: Adam Árni Andersen 

adaman@gardabaer.is

Opnunartími

Opið eftir að skóladegi lýkur til klukkan 16:30.

Opið í dag frá 13:00 til 16:30

Starfsemi

Ungmennahraun er sértæk frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára með miklar stuðningsþarfir. Markmið frístundarinnar er að veita ungmennunum öruggt og skapandi umhverfi til að efla félagsfærni og sjálfstæði. Starfsemin fer fram að loknum skóladegi ungmenna.

Opnunartími

  • Opið er í Ungmennahrauni virka daga frá kl. 13:00 til 16:30.
  • Opið er í vetrarfríum, jóla- og páskafríum og á starfsdögum framhaldsskóla frá kl. 08:30 til 16:30.
  • Lokað er á rauðum dögum.

Sækja um í Ungmennahrauni

Sótt er um í Ungmennahrauni í Þjónustugátt Garðabæjar. Þegar umsókn ásamt fylgigögnum hefur verið móttekin er farið yfir umsóknina af inntökuteymi Ungmennahrauns. Þegar umsókn er samþykkt þarf að skrá barnið á frístundavef Völu.

Mat á umsókn 

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi þátta:

  • Greiningu á fötlun ungmennis frá viðurkenndum greiningaraðilum. 
  • Mat á stuðningsþörf (SIS) frá Ráðgjafar- og greiningarstöð.
  • Náms- og félagslegri stöðu ungmennis, félagslegri þátttöku og líðan.
  • Óskir ungmennis eða forsjáraðila.
  • Mat á einstaklingsbundinni þjónustuþörf
Ungmennahraun - Garðabær