Beint í efni

Um­sókn­ir og eyðu­blöð

Í Þjónustugátt Garðabæjar má finna umsóknir Garðabæjar á rafrænu formi. Einnig eru einstaka umsóknir á pdf hér fyrir neðan.

Innskráning í þjónustugátt

Innskráningarkerfi island.is er notað til að fara inn í þjónustugátt Garðabæjar og þar geta notendur núna valið úr þremur leiðum til að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum:

  • Með rafrænum skilríkjum í síma
  • Með auðkennisappinu
  • Með skilríki á korti

Einnig er hægt að skrá sig inn fyrir hönd annarra í gegnum umboðsmannakerfi island.is. Þá getur t.d. einstaklingur sem skráir sig inn á Þjónustugátt Garðabæjar gefið öðrum umboð til að fara inn í þjónustugáttina fyrir sína hönd í tiltekin tíma. Tenging inn í umboðsmannakerfið er í gegnum hlekk í Þjónustugátt Garðabæjar.

Þarft þú aðstoð?

Íbúar eða aðrir sem þurfa aðstoð með umsóknir eða annað í þjónustugáttinni geta leitað til þjónustuvers Garðabæjar á Garðatorgi 7, s. 525-8500. 

Ábendingar um virkni þjónustugáttarinnar má senda á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is