Akstursþjónusta fyrir eldra fólk
Akstursþjónusta er í boði fyrir eldra fólk sem getur ekki nýtt sér almenningsvagna eða einkabíl til að komast ferða sinna. Markmið með akstursþjónustu er að auka sjálfstæði eldra fólks og stuðla að því að fólk geti búið lengur heima.
Sækja um akstursþjónustu
Þú getur sótt um akstursþjónustu í Þjónustugátt Garðabæjar. Þú getur líka fyllt út umsókn á pappír hjá þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð.
TIl að geta sótt um
- Þú þarft að eiga lögheimili í Garðabæ.
- Þú þarft að vera 67 ára eða eldri.
- Þú þarft að búa á eigin heimili.
- Ef þú hefur notað akstursþjónustu fyrir fatlað fólk fyrir 67 ára aldur áttu rétt á að halda þeirri þjónustu.
Þeir sem hafa aðgang að eigin farartæki, hafa fengið styrk til bifreiðakaupa frá Tryggingastofnun eða njóta bensínstyrks hafa alla jafna ekki rétt á akstursþjónustu.
Hvenær og hvar er ekið?
Það er ekið virka daga kl. 6:30–24:00 nema á stórhátíðum. Þá er ekið á sama tíma og Strætó. Laugardaga er ekið frá kl. 7:30–01:00 og sunnudaga 9:30–24:00.
Þeir sem nota þjónustuna þurfa að vera með úthlutaðar ferðir sem samþykktar eru af velferðarsviði.
Þjónustusvæðið er: Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfellsbær.
Gjaldskrá akstursþjónustu eldra fólks
Hver ferð kostar það sama og 1,5 almennt fargjald hjá Strætó. Ein ferð gildir þegar ekið er á milli tveggja staða. Akstur fram og til baka telst sem tvær ferðir.
Ef þú sækir sérhæfða dagdvöl utan bæjarins kostar hver ferð eitt almennt fargjald. Þetta á við ef sambærileg dagdvöl er ekki í boði hér hjá okkur í Garðabæ.
Gjaldið er innheimt með greiðsluseðli um hver mánaðamót.
Fá meiri upplýsingar um akstursþjónustu
Nánari upplýsingar má fá hjá stuðnings- og öldrunarþjónustu í tölvupósti á heimatjonusta@gardabaer.is eða í síma 585 2500.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.