Akstursþjónusta fatlaðs fólks
Akstursþjónustan er fyrir fatlað fólk til að komast í vinnu, skóla, hæfingu, þjálfun, stunda tómstundir eða fara til læknis.
Sækja um akstursþjónustu
Til að geta notað akstursþjónustu fatlaðs fólks þarftu að sækja fyrst um þjónustuna.
Annað hvort:
- í Þjónustugátt Garðabæjar
- hjá þjónustuveri Garðabæjar. Það er á Garðatorgi 7.
Með umsókn þurfa að fylgja öll nauðsynleg gögn eins og læknisvottorð eða greining á fötlun.
Skilyrði
Þú þarft að uppfylla annað eða bæði af þessum skilyrðum:
- Þú ert með hreyfihömlun og notar hjólastól. Hreyfihömlunin þarf að vera varanleg eða hún þarf að hafa varað í 3 mánuði eða lengur.
- Þú getur ekki notað strætó vegna langvarandi fötlunar.
Hvað kostar akstursþjónusta fatlaðs fólks?
Verð akstursþjónustu miðar við gjald fyrir öryrkja hjá Strætó bs.
- Ein ferð: 207 krónur
- Mánaðarkort: 3.480 krónur
- Árskort: 34.800 krónur
- Nemakort fyrir 16 ára og eldri: 34.800 krónur
Börn sem eru 11 ára eða yngri borga ekki neitt. Gestir borga sama verð og í Strætó.
Hvenær og hvar er ekið?
Þú getur fengið akstursþjónustu á eftirfarandi tímum:
- Mánudaga til fimmtudaga: frá 06:30 til 00:00
- Föstudaga: frá 06:30 til 01:00
- Laugardaga: frá 07:30 til 01:00
- Sunnudaga: frá 09:30 til 00:00
- Frídaga og stórhátíðadaga: frá 09:30 til 00:00
Akstur er í boði í þessum sveitarfélögum: Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfellsbær.
Panta ferð
Þú pantar ferðir hjá akstursþjónustunni Pant.
Þjónustuver Pant er opið:
- Virka daga frá 9 til 16
- Helgar frá 10 til 14
Ef ferðin á að vera fyrir 9:30 að morgni þarftu að panta fyrir 21:30 kvöldið áður.
Pöntunarsíða
Það er öruggast að panta ferð gegnum pöntunarsíðuna. Þar getur þú pantað með 2 tíma fyrirvara þegar þjónustuverið er opið. Þegar þjónustuverið er lokað þarftu að panta 4 tímum áður.
Þú færð staðfestingu með tölvupósti þegar pöntunin er afgreidd.
Hringja í þjónustuver
Þú getur pantað ferð með því að hringja í þjónustuver Pant í síma 540 2727.
Tölvupóstur
Þú getur sent pöntun með tölvupósti á pant@pant.is en það getur tekið allt að 12 klukkutíma að fá svar.
Upplýsingar um akstursþjónustu
Þú getur haft samband við þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða með tölvupósti á gardabaer@gardabaer.is.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.