Heimili og búsetukjarnar
Garðabær rekur búsetukjarna og heimili sem eru hönnuð með þarfir fatlaðs fólks í huga.
Húsnæði fyrir fatlað fólk
Sértækt húsnæði er fyrir fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir sem getur ekki séð sér fyrir húsnæði á annan hátt. Húsnæðið er hugsað fyrir þau sem þurfa mikla aðstoð og stuðning til að búa á eigin heimili.
Sækja um húsnæði
Þú sækir um sértækt húsnæði í Þjónustugátt Garðabæjar.
Þú getur aðeins sótt um eina tegund af félagslegu leiguhúsnæði í einu. Ráðgjafar á velferðarsviði leiðbeina þér varðandi umsókn um húsnæði.
Hver getur sótt um?
Til að umsókn sé samþykkt á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði þarftu að uppfylla eftirfarandi:
- Þú ert 18 ára eða eldri.
- Þú ert með staðfesta fötlunargreiningu.
- Þú hefur gengist undir mat á þörf fyrir sértækt húsnæði. Það getur annað hvort verið mat á stuðningsþörf (SIS) hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð í 5. flokki eða hærri eða mat hjá velferðarsviði á stuðningsþörf umfram 15 klukkustundir á viku.
- Umsóknin þín fær 6 stig eða meira samkvæmt reglum um félagslegt húsnæði.
Heimili fyrir fatlað fólk
Garðabær rekur heimili fyrir fatlað fólk á eftirfarandi stöðum:
Búsetukjarnar
Fólk með fötlun sem hefur þörf á sérstöku húsnæði og mikinn stuðning getur sótt um íbúð í búsetukjarna. Þar fær fólk þjónustu eftir sínum þörfum allan sólarhringinn.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.