Vinna og virkni
Margt fatlað fólk býr yfir dýrmætri reynslu og þekkingu sem getur nýst í ýmsum störfum. Stundum þarf aðstoð eða viðeigandi aðlögun til að fólk geti nýtt hæfileika sína.
Vernduð vinna, hæfing og dagþjónusta
Fatlað fólk sem ekki er fært um að sinna almennum störfum og þarf umfangsmeiri aðstoð getur sótt um verndaða vinnu, hæfingu og dagþjónustu. Þjónustan er sniðin að þörfum hvers og eins varðandi stuðning, tímalengd og verkefni.
Markmiðið er að veita fötluðu fólki þjálfun og stuðning til þess að auka hæfni þeirra til að taka þátt í daglegu lífi eða á vinnumarkaði.
Þú sækir um verndaða vinnu, hæfingu og dagþjónustu á vefsíðu Vinnumálastofnunar.
Atvinna með stuðningi
Fatlað fólk með skerta starfsgetu getur fengið einstaklingsmiðaða þjónustu sem kallast Atvinna með stuðningi. Markmiðið er að aðstoða fólk við að finna heppilegt starf á almennum vinnumarkaði og stuðning við að sinna því ef óskað er eftir.
Sækja um atvinnu með stuðningi
Þú sækir um atvinnu með stuðningi á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Ef þú vilt vita meira geturðu sent spurningar á ams@vmst.is.
Styrkir fyrir fatlað fólk
Fatlað fólk getur sótt um styrk vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar. Hámarksupphæð styrksins er 65.000 kr.
Hægt er að sækja um styrk fyrir:
- Kaupum á verkfærum og tækjum vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
- Námi sem er ekki greitt samkvæmt öðrum lögum.
Sækja um styrk
Auglýst er sérstaklega eftir umsóknum á haustin. Þá er sótt um í Þjónustugátt Garðabæjar, undir Málefni fatlaðs fólks.
Til að geta fengið styrk þarftu að:
- eiga lögheimili í Garðabæ
- hafa náð 18 ára aldri
- vera með varanlegt örorkumat
Nánari upplýsingar veitir Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólk á velferðarsvið, netfang: palaei@gardabaer.is.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.