Beint í efni

Fjár­hags­að­stoð

Íbúar Garðabæjar, 18 ára og eldri, sem eiga í tímabundnum erfiðleikum með framfærslu geta sótt um fjárhagsaðstoð. Leiðarljósið er hjálp til sjálfshjálpar.

Sækja um fjárhagsaðstoð

Þú sækir um fjárhagsaðstoð í Þjónustugátt Garðabæjar. Við afgreiðum umsóknina þegar öll fylgigögn hafa borist.

Fylgigögn

  • Skattframtal og staðgreiðsluyfirlit: Gögn fyrir þig og maka. Þú sækir gögnin á þjónustuvef skattsins. Sjá leiðbeiningarmyndband.
  • Upplýsingar um tekjur og greiðslur: Gögn síðustu 2 mánaða fyrir þig og maka. Þetta á við um launaseðla og greiðslur frá Tryggingastofnun, lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun, sjúkrasjóðum og Fæðingarorlofssjóði.
  • Staðfesting á atvinnustöðu
    • Vinnufær: Staðfesting á að rétti til atvinnuleysisbóta sé lokið eða staðfesting á skráningu í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun.
    • Óvinnufær: Læknisvottorð.

Hver á rétt á fjárhagsaðstoð?

Til að eiga rétt á fjárhagsaðstoð þarftu að: 

  • vera 18 ára eða eldri
  • hafa lögheimili í Garðabæ 
  • dvelja á Íslandi á meðan þú færð aðstoðina

Námsmenn og fjárhagsaðstoð

Meginreglan er sú að fólk á námslánum eða í lánshæfu námi fær ekki fjárhagsaðstoð.

Framhaldsskólanemar sem búa við félagslega erfiðleika geta sótt um aðstoð í eftirfarandi tilvikum:

  • Þú ert einstætt foreldri í sjálfstæðri búsetu og mánaðarlegar tekjur þínar síðustu þrjá mánuði hafa verið lægri en grunnupphæð fjárhagsaðstoðar.
  • Þú átt ekki meira en tvær annir eftir af námi og getur ekki unnið með skóla.

Upphæð fjárhagsaðstoðar

Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar miðast við útgjöld vegna daglegs heimilishalds. Eignir og skattskyldar tekjur þínar og maka (ef við á) geta komið til frádráttar. Aðstoðin er skattskyld en hægt er að nýta persónuafslátt.

Grunnupphæð (1. janúar 2026)

  • Einstaklingur í eigin húsnæði eða leigir: 273.020 kr.
  • Einstaklingur sem býr með öðrum eða greiðir ekki leigu: 218.416 kr.
  • Einstaklingur sem býr hjá foreldrum: 136.510 kr.
  • Einstaklingur sem býr hjá foreldrum með forsjá barns: 218.416 kr.
  • Hjón og sambúðaraðilar: 436.832  kr.

Ráðgjöf um fjárhagsaðstoð

Þú getur sent fyrirspurn á netfangið fjarhagsadstod@gardabaer.is eða pantað viðtalstíma hjá ráðgjafa í þjónustuveri Garðabæjar í síma 525 8500.