Velferð barna
Öll börn eiga rétt á að fá þá hjálp sem þau þurfa til að vaxa og dafna á eigin forsendum.
Velferð barna
Velferð barna í Garðabæ er samstarfsverkefni allra skóla og íþrótta- og tómstundafélaga í bænum. Markmiðið er að vinna saman að heildstæðri stefnu varðandi jafnrétti, kynheilbrigði og almenna velferð barna.
Verkefnið skiptist í þrjá mikilvæga þætti:
- Verklag og öryggi: Skýrt verklag ef grunur vaknar um ofbeldi, vanrækslu eða áhættuhegðun barna.
- Fræðsla: Viðamikil fræðsla um ofbeldi, jafnrétti, kynjafræði og kynheilbrigði sem nýtist börnum, ungmennum, starfsfólki og foreldrum.
- Stuðningur við starfsfólk: Námskeið fyrir þau sem starfa með börnum, annars vegar um ofbeldi, vanrækslu og áhættuhegðun barna og hins vegar um kynheilbrigði, jafnrétti og sjálfsímynd.
Verklag vegna gruns um ofbeldi, vanrækslu eða áhættuhegðun
Við leggjum ríka áherslu á að allir viti hvernig skuli brugðist við ef áhyggjur vakna um velferð barns.
Leiðbeiningar um verklagið
Farsæld barna
Öll börn eiga rétt á að fá þá hjálp sem þau þurfa til að vaxa og dafna á eigin forsendum. Farsældarlögin tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð á réttum tíma.
Farsældarlögin
Öll börn eiga rétt á þeirri þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að vita hvert eigi að leita eftir aðstoð en farsældarlögin eiga að tryggja að auðvelt sé að fá viðeigandi stuðning. Með samþættri þjónustu er aðstoðin skipulögð og samfelld til að mæta þörfum barnsins hverju sinni.
Farsæld: Aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðislegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar.

Tengiliður farsældar
Foreldrar og börn geta leitað til tengiliða farsælda til að fá stuðning og þjónustu við hæfi. Hlutverk tengiliðs er að hafa hag barnsins í forgrunni og vinna með ykkur.
Hvað gerist næst?
Eftir að þú hefur samband er þörf barnsins og fjölskyldunnar metin. Í skólunum starfa farsældarteymi þar sem saman koma tengiliður farsældar, umsjónarkennari eða deildarstjóri og aðrir sérfræðingar eftir þörfum, til dæmis skólasálfræðingur.
Áætlun um næstu skref er gerð í sameiningu. Hún er endurmetin reglulega til að tryggja að hún skili árangri. Ný leið er valin ef þörf krefur.
Hvaða stuðningur er í boði?
Stuðningurinn er fjölbreyttur og tekur mið af þörfum hvers barns. Allir skólar í Garðabæ bjóða upp á margvísleg úrræði sem þú getur kynnt þér á vefsíðu hvers skóla. Garðabær býður líka upp á úrræði til að styðja við börn og fjölskyldur þeirra.
Ef áskoranirnar eru miklar eða sérhæfðari getur farsældarteymið, í samráði við þig, aðstoðað við að leita eftir stuðningi frá Barnavernd eða BUGL.
Tengiliðar farsældar í Garðabæ
Hafðu samband við tengilið í skóla barnsins þíns.
Leikskólar
Akrar: Ljósbrá Dögg Ragnarsdóttir, ljosbrara@akrar.is
Ásar: Ásrún Vilbergsdóttir, asa@hjalli.is
Bæjarból: Bjarnhildur Ólafsdóttir, bjarnhildurol@baejarbol.is
Hnoðraholt: Isabella Sigurðardóttir, isabella@hjalli.is
Holtakot: Helga Linnet, hlinnet@holtakot.is
Hæðarból: Steinunn Baldursdóttir, steinunnba@haedarbol.is
Kirkjuból: Hildur Rut Stefánsdóttir, hildurst@kirkjubolid.is
Krakkakot: Linda María Geirsdóttir, lindge@krakkakot.is
Litlu-Ásar: María Ölversdóttir, mariaolvers@hjalli.is
Lundaból: Laufey Sigurðardóttir, laufeys@lundabol.is
Mánahvoll: Sara Tosti, sarato@manahvoll.is
Sjáland: Bergdís Sigurðardóttir, bergdis@sjaland.is
Sjálandsskóli - 5 ára deild: Eygló Ósk Guðjónsdóttir, eyglogudj@sjalandsskoli.is
Sunnuhvoll: Helga Þóra Ragnarsdóttir, helgara@sunnuhvoll.is
Urriðaból:
- Berglind Steinarsdóttir, berglinds@skolar.is
- Hjördís Diljá Gunnlaugsdóttir, hjordis@skolar.is
- Herdís Gunnlaugsdóttir, herdisg@skolar.is
Urriðaholtsskóli:
- Þ. Kristín Guðmundsdóttir, thorgerdurgu@urridaholtsskoli.is
- Margrét Gunnarsdóttir, margretgunnar@urridaholtsskoli.is
Grunnskólar
Alþjóðaskólinn
Elísa Ósk Línadóttir, elisa@internationalschool.is
Álftanesskóli
Drífa Sigurjónsdóttir, drifasi@alftanesskoli.is
Rakel Margrét Viggósdóttir, rakelvi@alftanesskoli.is
Salvör Kristjánsdóttir, salvorkr@alftanesskoli.is
Steinunn Sigurbergsdóttir, steinsig@alftanesskoli.is
Barnaskóli Hjalla
Sigrún Lilja Færseth, sigrunlilja@hjalli.is
Edda Rósa Gunnarsdóttir, eddarosa@hjalli.is
Flataskóli
Helga Kristjánsdóttir, helgakris@flataskoli.is
Helga Melsted, helgame@flataskoli.is
Katrín Anna Eyvindarsdóttir, katriney@flataskoli.is
Þórdís Þórðardóttir, thordisth@flataskoli.is
Garðaskóli
Guðný Þóra Friðriksdóttir, gudny@gardaskoli.is
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, hjordisgu@gardaskoli.is
Hjördís Eva Ólafsdóttir, hjordisolaf@gardaskoli.is
Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir, kristjana@gardaskoli.is
Hofstaðaskóli
Anna Steinunn Friðriksdóttir, annasteinunn@hofsstadaskoli.is
Arnheiður Ösp Hjálmarsdóttir, arndheidurhj@hofsstadaskoli.is
Stella Rut Axelsdóttir, stellarut@hofsstadaskoli.is
Sjálandsskóli
Hrafnhildur Sigurðardóttir, hrafnhildursig@sjalandsskoli.is
Sigríður Guðmundsdóttir, sirry@sjalandsskoli.is
Silja Kristjánsdóttir, siljak@sjalandsskoli.is
Urriðaholtsskóli
Guðrún Þorsteinsdóttir, gudrunthors@urridaholtsskoli.is
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, gudbjorgvi@urridaholtsskoli.is
Jónína Klara Pétursdóttir, joninape@urridaholtsskoli.is
Steiney Snorradóttir, steineysn@urridaholtsskoli.is
Þóra Árnadóttir, thoraar@urridaholtsskoli.is
Yngri börn (fyrir leikskólagöngu)
Þú getur rætt við starfsfólk á þinni heilsugæslu.
Barnavernd Garðabæjar
Markmið barnaverndar er að styðja foreldra til að hugsa vel um börnin sín. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu áttu að láta barnavernd vita.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.