Beint í efni

Bygg­ing­ar­leyfi

Til að byggja eða breyta húsnæði þarf að fá byggingarleyfi hjá byggingarfulltrúa Garðabæjar. Leyfið er veitt þegar öllum skilyrðum er fullnægt og þá fyrst er óhætt að hefjast handa við framkvæmdir.

Hve­nær þarf bygg­ing­ar­leyfi?

    Hvenær þarf ekki byggingarleyfi?

    Minniháttar framkvæmdir þurfa ekki byggingarleyfi en sumar þeirra þarf þó að tilkynna áður en verkið hefst. Þær þurfa alltaf að vera í samræmi við deiliskipulag og byggingarreglugerð.

    Fyrirspurn um byggingarleyfi

    Gott er að athuga hvort byggingarleyfi þarf fyrir áætluðum framkvæmdum og hvort þær samræmist deiliskipulagi.

    Nýbyggingar og breytingar

    • Tölvupóstur: Þú getur sent tölvupóst á bygg@gardabaer.is. Því skýrari sem fyrirspurnin er, því skýrari svör fást.
    • Símatími: Þú getur pantað símatíma hjá byggingarfulltrúa með því að hringja í þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500.

    Deiliskipulag

    Þú getur kannað hvort framkvæmd samræmist gildandi deiliskipulagi með því að senda tölvupóst á skipulag@gardabaer.is og láta uppdrætti fylgja með í viðhengi.

    Ef framkvæmdir krefjast breytingar á deiliskipulagi fylgir því gjald, grenndarkynning og 6–8 vikna bið.

    Embætti byggingarfulltrúa

    Byggingarfulltrúi hefur umsjón og eftirlit með byggingum og mannvirkjum í Garðabæ. Meginhlutverkið er að tryggja að byggingar séu öruggar, heilsusamlegar og í samræmi við lög og reglur.

    Starfsfólk embættisins sinnir fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal:

    • Yfirferð umsókna og aðaluppdrátta.
    • Útgáfu byggingarleyfa til að byggja, breyta eða rífa mannvirki.
    • Eftirliti og úttektum á framkvæmdatíma.
    • Skráningu fasteigna og lóða.
    • Veita húsbyggjendum og hönnuðum leiðbeiningar um ferlið og tæknileg atriði.

    Byggingarleyfi er útgefið af byggingarfulltrúa eftir að byggingaráform hafa verið samþykkt og öllum gögnum skilað inn.

    Umsókn um byggingarleyfi

    Allar skráningar hönnuða, byggingastjóra og iðnmeistara eru í Þjónustugáttinni.

    1. Sækja um byggingarleyfi

    Eigendur og hönnunarstjóri í þeirra umboði geta sótt um byggingarleyfi í Þjónustugátt Garðabæjar þegar uppdrættir af verki eru fullkláraðir.

    Með umsókninni á að fylgja:

    • aðaluppdrættir
    • tilkynning um hönnunarstjóra
    • lýsing á framkvæmd
    • samþykki meðeigenda ef við á

    2. Umsókn tekin fyrir

    Starfsfólk skipulags- og byggingarfulltrúa fer yfir umsóknina. Samþykki byggingarfulltrúa er staðfest af bæjarráði. Ef gögn vantar eða eru ófullnægjandi er umsækjandi látinn vita.

    • Fundað er á hverjum fimmtudegi um mál sem komu inn vikuna áður.
    • Ef umsókn er samþykkt fær umsækjandi tölvupóst með upplýsingum um næstu skref, gátlista um hverju þarf að skila inn og gjöld.
    • Ef einhverjar athugasemdir eru fær umsækjandi tölvupóst um að skila inn leiðréttingum eða viðbótum. Ef það berst ekki innan 12 mánaða er teikningum fargað og málið fellt niður.
    • Ef framkvæmdir kalla á óverulegar breytingar á deiliskipulagi þarf að halda grenndarkynningu áður en byggingarleyfi er veitt.  

    3. Veiting byggingarleyfis

    5. Áfangaúttektir

    • Byggingarstjórar framkvæma áfangaúttektir í mannvirkjaskrá
    • Byggingarleyfi fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá útgáfu þess. Framkvæmd telst hafin við fyrstu áfangaúttekt.

    5. Lokaúttekt

    • Þegar framkvæmd er lokið sækir byggingarstjóri um lokaúttekt í Þjónustugáttinni.
    • Byggingarfulltrúi tekur út verkið.
    • Byggingarstjóri og eigandi fá send lokaúttektarvottorð.

    6. Tilbúið húsnæði!

    Úttektir

    Byggingarstjórar framkvæma áfangaúttektir og tilkynna til mannvirkjaskrár.

    Byggingarfulltrúi tekur út byggingar á öllum byggingarstigum. Beiðnum um stöðuúttektir og skil á öðrum gögnum (til dæmis brunatryggingu fyrir fokheldisúttekt (BS2) á að skila í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar.

    Ekki má taka húsnæði í notkun fyrr en kröfur öryggisúttektar hafa verið uppfylltar og byggingarfulltrúi hefur gefið út öryggisúttektarvottorð.

    Lokaúttekt á að fara fram innan þriggja ára frá dagsetningu öryggisúttektarvottorðs. Leyfilegt er að framkvæma öryggis-og lokaúttekt samtímis. Beiðnir um öryggis- og lokaúttektir eru sendar í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar.

    Til að fá nánari upplýsingar um úttektir getur þú sent tölvupóst á bygg@gardabaer.is.

    Umfangsflokkar

    Þegar sótt er um byggingarleyfi fyrir mannvirki í umfangsflokki 2 eða 3 þarf að skila lífsferilsgreiningu (LCA) með umsókn.