Beint í efni

Opnunartími

  • 7. bekkur: Alla miðviku- og fimmtudaga kl. 17–20
  • 6. bekkur: Síðasta fimmtudag hvers mánaðar kl. 17–20
  • 5. bekkur: Síðasta miðvikudag hvers mánaðar kl. 17–20

Starfið

Opið hús

Á opnum húsum er opið í tæki og tól Fjörunnar. Á flestum kvöldum er boðið upp á dagskrá sem ungmennin sníða sjálf og stýra.

Stærri viðburðir

Stærri viðburðir eru þó nokkrir yfir árið en þar má nefna þátttöku í Samfés viðburðum eins og danskeppni og böll. 

Tvö böll eru haldin fyrir nemendur 7. bekkja í Garðabæ á hverju skólaári: Eitt á haustönn og annað á vorönn. Skipulagning 7. bekkja-balla er í höndum Fjörunnar og Dropans.

Klúbbar

Markmið klúbbastarfs er að bjóða upp á fjölbreytt val af skipulögðu tómstundastarfi í öruggu umhverfi. í klúbbunum er unnið er með ákveðin áhugamál eða þemu. Við tökum vel á móti hugmyndum að klúbbum. 

Hópastarf

Boðið er upp á hópastarf þar sem verkefnin taka mið af þörfum hópsins. Unnið er með félagsfærni, samskipti og hegðun. Markmiðið er að styrkja ungmennin og rjúfa félagslega einangrun.

Við hvetjum foreldra til að vera í sambandi ef þeir telja að hópastarf gæti verið fyrir sitt barn. Annars eru hóparnir myndaðir í samstarfi við skólann.

Upplýsingar um dagskrá

Allar dagskrár og upplýsingar eru hengdar upp á skólagöngum hvers árgangs. Við sendum tölvupóst varðandi stærri viðburði og dagskrá 5. og 6. bekkjar.

Starfsfólk

Áskell Dagur - Forstöðumaður

Kolbrún Helga Arnarsdóttir

Baldur Ingi Pétursson

Aþena Nína Newman

Thelma Dögg Einarsdóttir

Fjaran - Garðabær