Beint í efni

Fyr­ir­spurn um skipu­lags­mál

Skipulagsvinna Garðabæjar byggir á gildandi skipulagslögum og stefnu landsskipulags og svæðisskipulags þegar það á við.

Skipulagsdeild

Skipulagsdeild umhverfissviðs veitir bæjarbúum, bæjarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um skipulagsmál. Skipulagsstjóri fer með málsmeðferð skipulagsmála og starfar í umboði bæjarstjórnar.

Senda fyrirspurn eða umsókn um skipulagsbreytingu

Hægt er að senda inn fyrirspurn eða formlega umsókn til skipulagsnefndar. Erindin geta til dæmis varðað:

  • Breytingar á aðalskipulagi eða deiliskipulagi.
  • Breytingar eða hönnun á lóð.
  • Staðsetning og stærð smáhýsa.
  • Breytingar og staðsetningar á einstaka starfsemi.
  • Niðurrif bygginga og annarra mannvirkja.
  • Breyting á fjölda eða fyrirkomulagi bílastæða.

Fyrirspurn um skipulagsmál

Þú getur byrjað á því að senda fyrirspurn án þess að fullbúnir uppdrættir fylgi.

Starfsfólk umhverfissviðs veitir frekari upplýsingar um skipulagsmál og skipulagsferlið.

Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Með umsókn þurfa að fylgja:

  • breytingaruppdrættir deiliskipulags
  • ljósrit af lóðablöðum
  • skýringarmyndir ef þörf krefur

Gjöld vegna skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis eru samkvæmt gjaldskrá.

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

Fyrirspurnir og umsóknir eru lagðar fyrir á afgreiðslufundum skipulagsstjóra sem eru haldnir alla jafna á tveggja vikna fresti.

Til að mál verði tekið fyrir á afgreiðslufundi þurfa fullnægjandi gögn að hafa borist í síðasta lagi í lok dags á fimmtudegi vikuna fyrir fund.

Fundir skipulagsnefndar

Fundir skipulagsnefndar eru alla jafna á tveggja vikna fresti, 2. og 4. fimmtudag í mánuði. 

Til að mál verði tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar þurfa fullnægjandi gögn að hafa borist í síðasta lagi í lok dags á fimmtudegi vikuna fyrir fund.

Embætti skipulagsstjóra

Skipulagsstjóri starfar samkvæmt skipulagslögum, skipulagsreglugerð og samþykkt bæjarstjórnar um embættisafgreiðslur, sem og öðrum lögum, reglugerðum og samþykktum um skipulagsmál í Garðabæ.

Gjaldskrá

Liður

2012 (kr.)

2025 (kr.)

Athugasemd

Afgreiðslugjald (aðalskipulagsbreytingar)

9,500

16,454

Breyting á aðalskipulagsuppdrætti (1. mgr. 36. gr.)

130,000

225,156

Umsýslu- og auglýsingakostnaður (1. mgr. 36. gr.)

120,000

207,836

Umsýslu- og auglýsingakostnaður (2. mgr. 36. gr.)

60,000

103,918

Umsýslu- og auglýsingakostnaður (2. mgr. 38. gr.)

120,000

207,836

Nýtt deiliskipulag

Grenndarkynning – umsýslu- og auglýsingakostnaður (44. gr.)

30,000

51,959

Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka

110,000

190,516

Lög um mat á umhverfisáhrifum

Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir

65,000

112,578

Forsendur og skýringar

• Fjárhæðir miðast við byggingarvísitölu í janúar 2012 (112,3) og eru uppfærðar til janúar 2025 (194,5).

• Vinna samkvæmt reikningi byggir á áætlun skipulagstjóra og getur ekki verið hærri en samþykkt áætlun.