BREEAM vottaðar skipulagsáætlanir
BREEAM (Building Research Establishment Environmental Assessment Method) er eitt af fremstu vottunarkerfum heims fyrir sjálfbærni í byggingum og skipulagi.

BREEAM vottun
BREEAM vottun tryggir að verkefni uppfylli strangar kröfur um umhverfisáhrif, lífsgæði og orkunýtni.
Vottunin skiptist í eftirfarandi flokka:
- Samráð og stjórnun
- Félagsleg og efnahagsleg velferð
- Auðlindir og orka
- Landnotkun og vistfræði
- Samgöngur og aðgengi
Gæði byggðar og umhverfis
Garðabær leggur áherslu á gæði byggðar og umhverfis í allri skipulagsvinnu.
Í Garðabæ eru tvö hverfi með BREEAM vottaðar skipulagsáætlanir:
- Urriðaholt
- Vífilsstaðir (Vetrarmýri og Hnoðraholt norður).
Einnig fer skipulagsvinna fyrir Arnarland í gegnum BREEAM vottunarferli. Skipulagsáætlanir eru aðgengilegar á vef Skipulagsstofnunar.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.