Umhverfi og skipulag


Matjurtagarðar
Garðabær býður íbúum upp á að rækta matjurtir í skipulögðum görðum yfir sumartímann. Einnig eru skólagarðar í boði fyrir börn þar sem þau fá tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna.
Friðlýst svæði

Gálgahraun og Skerjafjörður
Gálgahraun og Skerjafjörður eru meðal verðmætustu friðlýstu svæða í Garðabæ. Bæði voru friðlýst árið 2009 með undirritun samninga milli Garðabæjar og umhverfisráðherra.

Vífilsstaðavatn og nágrenni
Vífilsstaðavatn og nágrenni voru friðlýst árið 2007 og var það fyrsta friðlýsta svæðið í Garðabæ. Friðlýsingin nær yfir 188 hektara, þar af er vatnið sjálft 27 hektarar.

Búrfell, Búrfellsgjá og Búrfellshraun
Friðlýsingar hraunahluta Búrfellshrauns, Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár voru staðfestar af umhverfis- og auðlindaráðherra í húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands 30. apríl 2014.

Gróður og umhirða
Garðabær leggur áherslu á vandaða umhirðu gróðurs og opinna svæða í bæjarlandinu. Garðyrkjudeild Garðabæjar fer með ábyrgð á umhirðu gróðurs og opinna svæða í bæjarlandinu og sinnir verkefnum sem tengjast útivist, ræktun og ráðgjöf til íbúa.

Fornleifar í Garðabæ
Í Garðabæ eru skráðar hundruðir fornleifa sem segja sögu byggðar allt frá landnámi. Minjarnar eru víða í bæjarlandinu, meðal annars á Álftanesi og í Heiðmörk.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.