Beint í efni

Gróð­ur og um­hirða

Garðabær leggur áherslu á vandaða umhirðu gróðurs og opinna svæða í bæjarlandinu. Markmiðið er að tryggja snyrtilegt, öruggt og aðgengilegt umhverfi fyrir íbúa og gesti.

Garðyrkjudeild Garðabæjar

Garðyrkjudeild Garðabæjar fer með ábyrgð á umhirðu gróðurs og opinna svæða í bæjarlandinu og sinnir verkefnum sem tengjast útivist, ræktun og ráðgjöf til íbúa.

Hlutverk Garðyrkjudeildar

  • Rekstur og umsjón opinna svæða, leiksvæða og stofnanalóða, þar á meðal leikskóla- og skólalóða
  • Umsjón með sparkvöllum, körfuboltavöllum og hjólabrettasvæðum
  • Umsjón verkefna Vinnuskóla Garðabæjar sem tengjast umhirðu gróðurs og opinna svæða. 
  • Umsjón og rekstur skólagarða í Silfurtúni yfir sumartímann.
  • Leiga og umsjón garðlanda og matjurtareita til almennings.
  • Ráðgjöf til íbúa um hirðingu gróðurs á lóðum.

Umhirða trjágróðurs

Trjágróður er mikilvægur hluti af nærumhverfi í Garðabæ og hefur áhrif á öryggi, ásýnd og aðgengi. Með góðri umhirðu stuðlar þú að heilbrigðum vexti gróðurs og öruggri umgengni fyrir íbúa og gesti.

Hvernig má sinna gróðrinum

Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur valdið óþægindum og jafnvel skapað hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Því er mikilvægt að halda gróðri innan lóðarmarka og tryggja gott aðgengi og öryggi í nærumhverfinu.

Tré og runna við lóðarmörk, til dæmis við gangstéttar, þarf að klippa og forma þannig að gangandi vegfarendur komist leiðar sinnar og þjónustutæki geti ekið óhindrað um. Garðyrkjustjóri Garðabæjar gerir árlega úttekt á trjágróðri við lóðarmörk til að fyrirbyggja slys, tjón og önnur óþægindi. Garðeigendur og umsjónarmenn opinna svæða bera ábyrgð á að gróður valdi ekki nágrönnum ónæði.

Seinni hluti vetrar og byrjun vors hentar yfirleitt best til klippinga, þar sem greinabygging trjáa og runna er vel sýnileg. Regluleg klipping stuðlar að heilbrigðum vexti og bætir öryggi í nærumhverfinu. Fjarlægja þarf greinar sem eru dauðar, sjúkar eða vaxa í óæskilega átt, og í sumum tilvikum getur verið þörf á formklippingu.

Nánari upplýsingar

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar hjá Smára Guðmundssyni, garðyrkjustjóra, í tölvupósti á smarig@gardabaer.is

Gróður og umhirða - Garðabær