Matjurtagarðar
Garðabær býður íbúum upp á að rækta matjurtir í skipulögðum görðum yfir sumartímann. Einnig eru skólagarðar í boði fyrir börn þar sem þau fá tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna.
Opnað verður fyrir leigu á görðum um miðjan apríl fyrir sumarið 2026.

Matjurtagarðar í Garðabæ
Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar matjurta á sumrin. Matjurtagarðar eru staðsettir í Hæðahverfi, á Álftanesi og á tveimur stöðum í Urriðaholti.
Helstu upplýsingar
- Leigutími er frá 10. maí til 15. október.
- Matjurtakassar eru 2 x 4 metrar að stærð, eða 8 m², og merktir með númerum.
- Vatn til vökvunar er á öllum svæðum.
- Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með.
- Leiguverð sumarið 2026 - verður sett hér inn í apríl.
- Opnað verður fyrir leigu um miðjan apríl 2026.
Hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa. Að leigutíma loknum þarf að taka allar matjurtir upp og skila kössunum tómum.
Hvar eru matjurtagarðarnir?

Á kortavef Garðabæjar má sjá staðsetningar matjurtagarða með því að velja Þjónustu og afþreyingu í valmynd hægra megin og haka við Matjurtagarða.
Hæðahverfi
Í Hæðahverfi eru 21 matjurtakassi í boði. Aðkoma að svæðinu er sunnan leikskólans Hæðarbóls.
Álftanes
Á Álftanesi eru 10 matjurtakassar við hlið gervigrasvallarins. Aðkoma er frá Breiðamýri.
Urriðaholt - Kauptún
Við Kauptún eru 10 matjurtakassar. Aðkoma er frá bílastæðinu í Kauptúni og göngustígur liggur að kössunum.
Urriðaholt - neðan Dýjagötu
Neðan Dýjagötu eru 28 matjurtakassar. Aðkoma er frá botnlanga Dýjagötu og Kinnargötu.
Skólagarðar í Silfurtúni
Börnum gefst tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna á lifandi og skemmtilegan hátt í Skólagörðunum í Silfurtúni. Garðarnir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6–13 ára og eru starfræktir yfir sumartímann.
Skólagarðarnir eru staðsettir í Silfurtúni, með aðkomu við leikskólann Bæjarból. Leiðbeinandi er á staðnum til að aðstoða börnin.
Helstu upplýsingar
- Skólagarðar eru opnir á virkum dögum kl. 8:00–16:00.
- Garðarnir eru ekki daggæsla.
- Skráning fer fram á staðnum frá 2. júní.
- Greitt er efnisgjald að upphæð 5.500 kr.
- Eldra fólki býðst að leigja garð í skólagörðunum eftir 6. júní.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Garðyrkjudeild Garðabæjar í tölvupósti á smarig@gardabaer.is
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.