Beint í efni

Ör­ygg­is­mynda­vélar

Garðabær hefur sett upp stafrænar myndavélar hjá stofnunum sínum þar sem rafræn vöktun er talin nauðsynleg vegna öryggis eða eignavörslu. Alls eru um 350 öryggismyndavélar í notkun, bæði innan dyra og utan. Svæði sem eru vöktuð eru merkt með skýrum hætti.

Öryggismyndavélar í Garðabæ

Alls eru um 350 öryggismyndavélar í notkun, bæði innan dyra og utan. Svæði sem eru vöktuð eru merkt með skýrum hætti.

Tilgangurinn með vöktuninni er að:

  • varna því að eigur bæjarins séu skemmdar
  • koma í veg fyrir að farið sé um byggingar eða aðrar eigur í leyfisleysi
  • stuðla að auknu öryggi

Reglur og persónuvernd

Reglur Garðabæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla tryggja að rafræn vöktun sé notuð í öryggisskyni með skýrum skilyrðum um varðveislu og aðgang að upptökum.

Markmið reglnanna er að tryggja meðalhóf, virða einkalífsrétt þeirra sem sæta vöktun og ganga ekki lengra en nauðsyn ber til.

Reglurnar byggja á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum um rafræna vöktun.

Reglur Garðabæjar gilda ekki um kerfi sem sett eru upp í samstarfi við lögreglu og Neyðarlínuna utan stofnana bæjarins.

Athugasemdir og ábendingar

Hægt er að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri við persónuverndarfulltrúa Garðabæjar á netfangið personuvernd@gardabaer.is eða í síma 525 8570