Beint í efni

Um­hverf­is­við­ur­kenn­ingar

Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega viðurkenningu fyrir snyrtilegan frágang lóða og opinna svæða hjá einstaklingum og fyrirtækjum.

Snyrtilegur frágangur lóða og opinna svæða

Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega viðurkenningu fyrir snyrtilegan frágang lóða og opinna svæða hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Nefndin velur einnig snyrtilegustu götuna í bænum. Af því tilefni er sett upp viðurkenningarskilti við götuna.

Íbúar geta sent ábendingar um snyrtilegan frágang lóða, opinna svæða eða gatna allt árið um kring. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Garðabæjar á Garðatorgi 7 eða senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is.