Dagdvöl á Hrafnistu Ísafold
Í dagdvöl Ísafoldar er fjölbreytt framboð af virkni í fallegu umhverfi sem býður upp á hlýlegan heimilisbrag.

Um dagdvölina
Áhersla er lögð á samfélagslega þátttöku, skynjun og áhrif umhverfis og upplifunar á velferð og vellíðan.
Markmið dagdvalar á Hrafnistu er að viðhalda sjálfstæði einstaklingsins og rjúfa félagslega einangrun. Með dagdvölinni er mögulegt að lengja þann tíma sem eldra fólk getur búið heima.
Einstaklingar koma að morgni og fléttast inn í skipulagt starf á Hrafnistu og fara síðan aftur heim seinni part dags. Mismunandi þarfir einstaklinganna ráða mestu um hversu mikið þeir nýta dagdvölina.
Rými í dagdvöl
Alls eru 20 rými í dagdvölinni:
- 16 almenn dagdvalarrými
- 4 sérhæfð rými fyrir fólk með heilabilun
Milli 40 og 50 einstaklingar nýta rýmin á hverjum tíma.
Sækja um dagdvöl
Umsókn um dagdvöl skal vera skrifleg og henni þarf að fylgja tilvísun frá lækni eða hjúkrunarbréf ásamt beiðni fyrir sjúkraþjálfun ef óskað er eftir þeirri þjónustu.
Greiðsluþátttaka í dagdvöl
Dagdvalir á Íslandi eru reknar með daggjöldum frá ríkinu. Gestir dagdvalar greiða daggjald fyrir veru sína hverju sinni samkvæmt reglugerð um dagdvöl aldraðra.
Dagdvalir sjá um að innheimta greiðslu gesta samkvæmt gjaldskrá ríkisins. Innifalið í gjaldi er akstur og fæði.
Þjónusta
Veitingar
Gestum í dagdvöl er boðið upp á morgunverð, hádegisverð og síðdegiskaffi á Ísafold.
Akstursþjónusta
Akstursþjónusta er fyrir dagdvalargesti til og frá heimilum þeirra sem þess þurfa.
Önnur þjónusta
Á Ísafold er einnig sjúkraþjálfun, hársnyrtistofa og fótaaðgerðastofa sem dagdvalargestir geta nýtt sér. Sjá meira um þjónustu á Ísafold.
Forföll
Gestir eru beðnir að tilkynna forföll í síma 535 2250.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.