Beint í efni

Hrafn­ista Ísa­fold – hjúkr­un­ar­heim­ili

Á Hrafnistu Ísafold er sólarhrings hjúkrunar- og læknisþjónusta. Auk þess að vera hjúkrunarheimili er hægt að sækja um aðra þjónustuþætti eins og dagdvöl.

Hrafnista Ísafold – hjúkrunarheimili

Strikið 3, 210 Garðabær

Sími: 535 2200

Heimilið

Hrafnista Ísafold er staðsett á Sjálandi í Garðabæ með útsýni yfir á Bessastaði, Gálgahraun, Gróttuvita og út á Faxaflóann. Við heimilið er stór skjólgóður garður sem nýttur er til útivistar á góðviðrisdögum. Heimilið er í göngufæri við strandlengjuna þar sem hægt er að nýta sér ýmsar skemmtilegar og aðgengilegar gönguleiðir.

Herbergin

  • Öll herbergi eru einbýli.
  • Hvert herbergi er um 35 fermetrar, sameiginlegt svefnherbergi og stofa auk baðherbergis og eldhúskróks með innréttingu, ísskáp og vaski.
  • Í herbergjum er sjúkrarúm, náttborð, fataskápur á hjólum, gardínukappar, gardínur og rúllugluggatjöld.
  • Í herbergjum er öryggiskallkerfi, tengingar fyrir síma, sjónvarp og tölvu.
  • Heimilisfólk útvegar sjálft annan húsbúnað og gluggatjöld ef það óskar eftir að gera herbergi sitt enn heimilislegra.

Hugmyndafræði

Í hugmyndafræði heimilisins er rík áhersla lögð á sjálfsákvörðunarrétt og þátttöku íbúa. Tekið er það besta frá sjálfstæðri búsetu og sameinað öryggi hjúkrunarheimilis.

Sækja um rými á Hrafnistu Ísafold

Þau sem hyggja á flutning til Hrafnistu þurfa að sækja um færni- og heilsumat hjá Færni- og heilsumatsnefnd höfuðborgarsvæðisins. Færni- og heilsumat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega hjúkrun og búsetu á hjúkrunarheimili.

Þjónusta á Ísafold

Sjúkraþjálfun Ísafoldar

Á Ísafold er boðið upp á sjúkraþjálfun. Þar starfa bæði sjúkraþjálfarar sem þjónusta almenning og sjúkraþjálfarar á vegum Hrafnistu Ísafold, sem þjónusta heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu.

Fótaaðgerðastofa Auðbjargar

Fótaaðgerðarstofa Auðbjargar er opin almenningi. Sérstakur afsláttur er veittur eldri borgurum og öryrkjum.

Hársnyrtistofan Ísafold

Hársnyrtistofan Ísafold er opin almenningi. Sérstakur afsláttur er veittur eldri borgurum og öryrkjum.

Dagdvöl á Ísafold

Í dagdvöl Ísafoldar er fjölbreytt framboð af virkni í fallegu umhverfi sem býður upp á hlýlegan heimilisbrag. Áhersla er lögð á samfélagslega þátttöku, skynjun og áhrif umhverfis og upplifunar á velferð og vellíðan.