Notendasamningar
Notendasamningur er til að gefa fötluðu fólki meira val um hvernig aðstoð það fær. Fólk fær greiðslu frá Garðabæ og notar peninginn til að ráða sitt eigið starfsfólk og stjórna þjónustunni sjálft.
Hverjir geta fengið notendasamning?
Það þarf að uppfylla nokkur skilyrði til að fá notendasamning.
Þú þarft að:
- Eiga lögheimili í Garðabæ.
- Vera 18 ára eða eldri. Foreldrar og forsjáraðilar geta sótt um fyrir börnin sín.
- Búa í eigin búsetu (ekki á stofnun eða í húsnæði með stuðningi).
- Þurfa stuðning í að minnsta kosti 40 klukkutíma á mánuði.
Hvernig virka notendasamningar?
- Þú færð borgað fyrir 1 mánuð í einu.
- Þú verður að nota peninginn eins og stendur í samningnum.
- Þú þarft að skila skýrslu á 6 mánaða fresti. Í skýrslunni segir þú hvernig þú notaðir vinnustundirnar.
- Í lok ársins þarftu að skila peningnum sem þú notaðir ekki.
Aðstoðarfólk
Þú finnur, ræður og stjórnar þínu aðstoðarfólki. Yfirleitt máttu ekki ráða maka þinn eða nána ættingja sem búa á sama heimili og þú. Stundum er hægt að gera undantekningu.
Aðstoðarfólk þarf að sýna sakavottorð ef það er beðið um það. Þú mátt ekki ráða fólk sem hefur verið dæmt fyrir kynferðisbrot.
Sækja um notendasamning
Þú sækir um í Þjónustugátt Garðabæjar.
Með umsókn þurfa að fylgja gögn eins og:
- Sjálfsmat á færni.
- Staðfesting á fötlun eða greiningu.
- Upplýsingar um hvort þú skuldir pening hjá ríkinu eða á vanskilaskrá.
Ef umsókninni er hafnað getur þú kært málið til velferðarráðs eða úrskurðarnefndar velferðarmála.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
NPA er þjónusta sem gerir fötluðu fólki kleift að taka stjórn á eigin lífi og aðstoð. NPA byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf og styrkir rétt fatlaðs fólks til fullrar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum, án óþarfa hindrana.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.