Beint í efni

Not­enda­stýrð per­sónu­leg að­stoð (NPA)

NPA er þjónusta sem gerir fötluðu fólki kleift að taka stjórn á eigin lífi og aðstoð. NPA byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf og styrkir rétt fatlaðs fólks til fullrar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum, án óþarfa hindrana.

Hvernig virkar NPA?

Með NPA ræður fatlað fólk sjálft hver aðstoðar það. Aðstoðarfólkið vinnur samkvæmt starfslýsingu sem hver setur fyrir sig.

Með NPA fær umsýsluaðili greitt í hverjum mánuði. Það getur verið einstaklingur með rekstrarleyfi eða fyrirtæki. Peningurinn er fyrir:

  • laun fyrir aðstoðarfólk.
  • annan kostnað fyrir starfsfólk.
  • kostnað við umsýslu.

Notendasamningar

Notendasamningur er til að gefa fötluðu fólki meira val um hvernig aðstoð það fær. Fólk fær greiðslu frá Garðabæ og notar peninginn til að ráða sitt eigið starfsfólk og stjórna þjónustunni sjálft.