Félagsleg ráðgjöf
Markmiðið með félagslegri ráðgjöf er að styðja fólk til sjálfshjálpar svo hver og einn geti notið sín sem best. Allir íbúar Garðabæjar, 18 ára og eldri, geta fengið ráðgjöf sér að kostnaðarlausu.
Ráðgjöf og stuðningur
Ráðgjafar velferðarsviðs aðstoða við persónuleg og félagsleg vandamál og veita stuðning og upplýsingar um félagsleg réttindi.
Dæmi um ráðgjöf og aðstoð:
- Fjárhagsaðstoð.
- Leiðbeiningar varðandi húsnæðisúrræði.
- Uppeldisráðgjöf (námskeið).
- Samvinna eftir skilnað (SES).
Bóka tíma í ráðgjöf
Hafðu samband við þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða með tölvupósti á gardabaer@gardabaer.is til að bóka viðtal eða símtal hjá félagsráðgjafa eða fá nánari upplýsingar.
Trúnaður
Starfsfólk velferðarsviðs er bundið þagnarskyldu um málefni þeirra sem leita þangað. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera samkvæmt lagaskyldu, til dæmis ef barn er í hættu.
Tengt efni
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.
