Húsnæðismál
Félagslegt leiguhúsnæði
Félagslegar leiguíbúðir eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem þarf sérstaka aðstoð við að sjá sér fyrir húsnæði.
Ástæður geta verið margvíslegar, til dæmis:
- lágar tekjur
- þung framfærslubyrði
- fötlun, en ekki þörf á aðstoð allan sólarhringinn
- aðrir félagslegir erfiðleikar
Fjárhags- og félagslegar aðstæður eru metnar út frá reglum Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði.
Sækja um félagslegt húsnæði
Til að umsóknin þín verði samþykkt á biðlista þarftu að uppfylla eftirfarandi:
- Vera 18 ára eða eldri.
- Eiga lögheimili í Garðabæ.
- Ekki vera eigandi að húsnæði (á Íslandi né erlendis).
- Tekjur og eignir heimilisfólks þurfa að vera fyrir neðan skilgreind mörk.
Viðmið um tekjur og eignir (2026)
Tekjur
Tekjur á ári mega vera að hámarki:
- Einstaklingar: 7.874.000 kr. á ári.
- Hjón og sambúðarfólk: 11.025.000 kr. samanlagt.
Viðmiðið hækkar um 1.969.000 kr. fyrir hvert barn á heimilinu sem er yngra en 20 ára.
Eignir
Eignir mega að hámarki vera 8.499.000 kr.
Viltu vita meira?
Þú getur haft samband við starfsfólk velferðarsviðs Garðabæjar í síma 525 8500 eða með tölvupósti á leiguibud@gardabaer.is.
Forgangsröðun á umsóknum
Umsóknum um félagslegt leiguhúsnæði er raðað eftir stigakerfi. Stigagjöfin byggir meðal annars á fjölskylduhögum, félagslegum aðstæðum, tekjum og eignum.
Lágmarksstig fyrir einstaklinga, hjón og sambúðarfólk
- Engin börn: 4 stig.
- Með barn: 5 stig.
Úthlutun
Biðlistinn er reglulega uppfærður og staða umsókna á biðlista getur því breyst í hverjum mánuði, bæði færst framar og aftar á listanum. Þegar íbúð er laus er ekki aðeins farið eftir stigagjöf heldur er gert heildarmat á aðstæðum umsækjanda og íbúðarinnar. Vegna þess er ekki hægt að segja til um hvar á biðlistanum þín umsókn er fyrr en kemur að úthlutun.
Leiga í félagslegu leiguhúsnæði er hugsuð sem tímabundin úrlausn. Breytingar á hjúskaparstöðu, fjölskyldustærð eða fjárhagsstöðu geta leitt til árlegrar endurskoðunar á leigurétti.
Leiguverð í félagslegu húsnæði
Hver íbúð hefur fast grunnverð og ofan á það leggst fermetraverð. Upphæðirnar breytast miðað við vísitölu neysluverðs. Leigjandi greiðir að auki rafmagn, hita og í hússjóð.
Verð í janúar 2026
- Grunnverð á íbúð: 76.802 kr.
- Verð á fermetra: 1.207 kr.
Húsnæði fyrir fatlað fólk
Sértækt húsnæði er fyrir fatlað fólk sem þarf mikinn stuðning til að búa á eigin heimili og getur ekki séð sér fyrir húsnæði öðruvísi.
Garðabær rekur einnig heimili og íbúðakjarna fyrir fatlað fólk.
Húsnæðisbætur
Húsnæðisbætur hjá HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun) eru mánaðarlegar greiðslur ætlaðar til þess að aðstoða fólk sem leigir íbúðarhúsnæði.
Þú sækir um húsnæðisbætur hjá HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun). Leigusamningurinn þarf að vera skráður í leiguskrá.
Upphæð húsnæðisbóta fer eftir fjölda fólks á heimilinu, tekjum þess og eignum og leiguverði. Á vef HMS má finna nánari upplýsingar um skilyrði og upphæðir og reiknivél fyrir upphæð húsnæðisbóta.
Húsnæðið getur verið:
- á almennum leigumarkaði
- félagslegt leiguhúsnæði
- á námsgörðum
- áfangaheimili
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Sérstakur húsnæðisstuðningur Garðabæjar er fjárstuðningur fyrir fólk á leigumarkaði sem þarf sérstakan stuðning til að greiða húsaleigu umfram almennar húsnæðisbætur. Stuðningurinn er fyrir fólk með lágar tekjur, þunga framfærslubyrði og félagslegan vanda.
Sækja um sérstakan húsnæðisstuðning
Þú sækir um sérstakan húsnæðisstuðning í Þjónustugátt Garðabæjar. Umsóknarfrestur er til 20. dags mánaðar til að fá greitt fyrir þann mánuð.
Húsnæðisstuðningur er greiddur út síðasta dag mánaðarins.
Hver getur sótt um?
Til að fá sérstakan húsnæðisstuðning þarftu að:
- vera 18 ára eða eldri
- eiga lögheimili í Garðabæ
- leigja í Garðabær
- vera með samþykkta umsókn um húsnæðisbætur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).
Undanþágur frá skilyrðum
15-17 ára námsmenn úti á landi
Undanþága er gerð frá skilyrðum um lögheimili og leiguhúsnæði fyrir 15–17 ára börn sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum vegna náms fjarri lögheimili. Stuðningurinn er 60% af leiguverði og er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila.
Virk húsnæðisleit
Þú getur sótt um húsnæðisstuðning þó leigusamningur liggi ekki fyrir ef þú ert í virkri húsnæðisleit. Umsóknin gildir í 3 mánuði frá samþykki. Greiðsla hefst þegar réttur til húsnæðisbóta hefur verið staðfestur.
Undanþága vegna félagslegra aðstæðna
Velferðarsvið getur samþykkt umsókn þótt þú eigir ekki rétt á húsnæðisbótum frá HMS ef þú uppfyllir annað hvort skilyrði:
- Þú ert með að lágmarki 6 stig í matsviðmiðum og eignir eru undir 30 milljónum kr.
- Þú ert með að lágmarki 9 stig í matsviðmiðum og eignir eru 30 milljónir kr. eða meira
Í þessu tilfelli er sérstakur húsnæðisstuðningur 40% af leiguverði, þó að hámarki 60.000 kr.
Upphæð húsnæðisstuðnings
Óskertur sérstakur húsnæðisstuðningur er 90% af húsnæðisbótum.
Hvenær lækkar stuðningurinn?
Upphæðin lækkar í eftirfarandi tilfellum:
- Samtals geta húsnæðisbætur og stuðningur ekki verið hærri en 75% af leiguverði.
- Samtals geta húsnæðisbætur og stuðningur ekki verið hærri en 120.000 kr. á mánuði.
- Leiguverð að frádregnum bótum og stuðningi getur ekki verið lægra en 80.000 kr.
Viltu vita meira?
Ef þú vilt fá nánari upplýsingar getur þú sent tölvupóst á husbot@gardabaer.is.
Húsnæðisáætlun Garðabæjar
Á hverju ári setur Garðabær fram húsnæðisáætlun til næstu 10 ára. Áætluninni er ætlað að draga fram mynd af stöðu húsnæðismála hverju sinni, greina framboð og eftirspurn eftir mismunandi tegundum húsnæðis og setja fram áætlun um hvernig Garðabær ætlar að mæta húsnæðisþörf íbúa, til styttri og lengri tíma.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.